Bloggfærslur mánaðarins, ágúst 2023

NOOR / (Tartarar) : Eru 2,4 metra hátt fólk af hvíta kynstofninum. Aðallega rauðhært fólk sem að býr núna á plánetu sem að heitir ALKORAT, sem að snýst í kringum Taygeta-sólina sem að er í Pleiades-stjörnu-þyrpingunni:

Þetta hávaxna fólk á uppruna sinn á plánetu sem kallast TAR og er í Keppler 62 sólkerfinu, frá þeirri plánetu sem að er fjærst Kepler-sólinni.

 

Þaðan gæti þetta fólk hafa flutt til jarðarinnar fyrir c.a. 1 milljón árum og sest að á svæði sem að þá var kallað;

TARTARIA.

Það voru þessir risar sem að reistu kínamúrinn (sjálfsagt með einhverkonar geimskipum) til að verja sig fyrir árásum kínverja þess tíma.

Það var ekki þannig að kínverjarnir hafi reist múrinn; heldur eignuðu þeir sér hann eftir að hafa hrakið þessa norrænu risa burt.

Þaðan gætu risarnir hafa flutt til plánetunnar ALKHORAT sem að er 5 plánetan frá Taygeta-sólinni; þar sem að þeirra kynstofn er ennþá á lífi.


RAMAY (Naacals) : Þeirra höfuðstöðvar eru á plánetu sem að heitir Rama og er í sólkerfinu Capella sem að er í stjörnukerfinu Ökumanninum (Auriga):

 

 

Þessir utanjarðargestir  hjálpaðu MAYAN-fólkinu með allskyn nýjungar, eins og stjörufræði, pýramídabyggingar ofl.


IARGAN : Um er að ræða vinveittar verur sem koma frá plánetunni Iarga :

 

 

Hvað gæti ALHEIMSORÐABÓKIN

frætt okkur um þessa tegund? 

Það er til BÓK UM CONTACT við þessar verur:

Hérna er frásaga manns sem að var boðið til þeirra plánetu: 


KORENDIAN / KORENDI : Hérna er um að ræða vinveittar verur sem að eiga heima á plánetu sem að kallast Korendor og er í 400 ljósára fjarlægð frá jörðu og er í stjörnumerkinu Hjarðmanninum (Á Bootes-svæðinu):

 

Ýtarefni um Bootes-svæðið.

Eru ca. 5 fet á hæð.

Eru með neðanjarðarbækistöð í Massachusetts í USA:

Hvað gæti ALHEIMSORÐABÓKIN frætt

okkur um þessa tegund ?


TENGRI : Þó að hér sé um að ræða frekar ófrýnilegar verur að þá eru þær vinveittar jarðarbúum og búa í Trappist 1-sólkerfinu í neðanjarðarborgum:

Ýtarefni um Trappist 1-sólkerfið:

 

Þeir búa á plánetunni C sem að er önnur pláneta frá sólu og hugsanlega gæti verið þar of heitt fyrir venjulega jarðarbúa en það sem að NASA áttar sig ekki á

þeir búa í neðanjarðarborgum sem að skýla þeim fyrir of sterkri sól: 

Nákvæmari upplýsingar um Tengri

frá Elenu Danaan: 

Þar búa um 12 miljónir af þessum verum.

Eru meðlimir í  

GALACTIC FEDERATION OF PLANETS

= VINVEITTIR.

Þeir uppgötvuðu jörðina okkar

fyrir c.a.10.000 árum og eru ekki endilega á leiðinni til okkar og myndu eflaust skapa hræðslu á meðal almennings vegna síns útlits.


EBEN (Litlir gráir): Þeirra höfuðstöðvar eru á plánetunni Selpo / Serpo sem að er í sólkerfinu Zeta-Reticuli 1. Þeir eru vinveittir jarðarbúum:

Mönnum ber ekki  saman um hvernig EBEN-geimverurnar líta nákvæmlega út, en hér verða settar fram nokkrar kenningar: 

 

Það var þessi tegund sem að hrapaði

á sínum UFO-diski við Roswell 1947:

Bók sem að er sérhæfð í þessu viðfangsefni:  

Er fólk almennt meðvitað um að kvikmyndin

CLOSE ENCOUNTER OF THIRD KIND 

sé byggð á raunverulegum atburðum

að mestu leiti og að

fulltrúar jarðarbúa fóru um borð í UFO-

geimskip og þeir heimsóttu plánetuna SERPO

sem að er í Zeta-Reticuli stjörnumerkinu

sem að er í ca. 40 ljósára fjarlægð og

ferðalagið tók ca. 10 mánuði og það var

m.a. ferðast í gegnum ormagöng:

Þeir dvöldu á þeirra plánetu í 10 ár.

 ÝTAREFNI FRÁ LEN KASTEN:

 


EBAN : (Stórir gráir): Höfuðstöðvar þeirra er í sólkerfinu Betelgeuse sem að er í Oríon-stjörnumerkinu:

Lifandi mynd: 

2017: Ekki er vitað hver er sagan á bak við þetta myndband.

-------------------------------------------

Hérna er svo atburður nær okkur í tíma sem að fjallar um UFO-disk sem að var skotinn niður yfir Kalahari 1989. Hugsanlega gæti hérna um verið að ræða sömu geimverurnar, hér að ofan og náðust í þessu tilviki hérna fyrir neðan. En það er ekki 100% sannað: 

-------------------------------------------

Það voru þessar EBAN-geimverur sem að sömdu við USA árið 1954 um að þær mættu nema einhvern fjölda af jarðarbúum á brott og í staðinn fengi USA allskyns tækni frá þeim:

 


GRAIL: (Stórir gráir): Höfuðstöðvar þeirra er í sólkefinu Míntaka sem að er í Oríon-stjörnumerkinu: Þessar verur eru hættulegar en ekki mikið á ferðinni í kringum jörðina:

 


OOGANGA: Höfuðstöðvar þessara illu reptillian geimvera er í Bellatrix-sólkerfinu (Öðru nafni; Uruud-sólkerfinu) sem að er í Orion-stjörnumerkinu:

Þessar verur eru búnar til með allskyns klónafikti til að geta starfað sem stríðsmenn fyrir hærra settar illar verur.

Þeir eru að bíða eftir því að

GALACTIC FEDERATION OF WORLD (SAMEINUÐUÞJÓÐIR GEIMSINS)  hætti að gæta jarðarinnar svo að þeir geti komið og hertekið jörðina.

Hvað gæti ALHEIMSORÐABÓKIN  frætt okkur um þessar verur:


ANDRÓMEDU-BÚAR: Þeirra höfuðstöðvar eru í sólkerfi sem að kallast Titawin og er í c.a 44 ljósára fjarlægð frá jörðu og er í stjörnumerkinu Adrómedia:

 

Það er líka til vetrarbraut sem að heitir Andrómeda og fólk á að til að rugla þessum tveim fyrirbærum saman.

Hérna mun vera fjallað um STJÖRNUMERKIÐ

en ekki vetrarbrautina:

 

Hvað gæti ALHEIMSORÐABÓKIN  

frætt okkur um þessi mál?

Alex Collier var tekin um borð í þeirra móðurskip og hann ber þeim vel söguna: 

Það sem að skiptir mestu máli

byrjar á mínútu 5.
Þó að þessi fyrirlestur sé haldinn í japan að þá er það auka-atriði.

------------------------------------------

Hérna gæti verið um að ræða gamla egypska veggjamynd af Andrómedubúa: 

 


Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband