Bloggfærslur mánaðarins, september 2024

Hvað er gott að hafa í huga við BLÁBERJA-SULTUGERÐ?

-Merjið 3 kg. af Bláberjum

í stórum potti.

(Það tekur því ekki að fara af stað með minni skammt).

 

-Vökvi verður til í pottinum.

Gæti verið ráð að bæta við 1 dl. af vatni í pottinn. (Hvað viljið þið hafa sultuna þykka?)

 

-Látið suðuna koma upp og bætið

þá sultu-sykrinum í pottinn 1kg.

 

-Ég hef sett 1 tsk. af kanill í pottinn.

 

-1 matskeið af MELATÍNI.

(Það þarf ekki ef að 20% af berjunum eru grænjaxlar).

 

-Sumir hafa mælt með að kreista safa úr 3 sítrónum í pottinn.

Það er ekki víst að það þurfi.

 

-Sjóðið gumsið í 20 mínútur

og hrærið vel í á meðan.

 

-Hellið bláberjasultunni í krukkur sem að búið er að dauðhreinsa í sjóðandi heitu vatni.

 

-Snúið krukkunum á hvolf

og geymið þær þannig í ísskáp

í 1 sólarhring eða lengur . (Þessi aðferð virkar eins og varan hafi verið Vacon-pökkuð; og geymist betur).

Svipuð uppskrift af bláberjasultu.

 

 

 

 


Hvað er gott að hafa í huga tengt RABBABARA-SULTU-GERÐ?

Til að fylla rabbabara í 1 líters vatnskönnu þarf 10 væna rabbabarastilka.

 

Það tekur því ekki að  fara af stað í RABBABARA-SULTU-GERÐ nema að ná

30 RABBABARA-STILKUM saman

til að brytja niður í pott,

þannig að úr verði

3 lítra  RABBABARA -MASSI

og síðan er bara að bæta við

3kg. af sykri.

(Ég myndi mæla með sérstökum sultusykri sem að hægt er að kaupa í flestum búðum; en það væri ekki bráð-nauðsynlegt).

Síðan er ráðlagt að setja 1 dl.vatn á hvert 1kg. af brytjuðum rabbabara.

Þá 3 dl.vatn

á 3.kg. af brytjuðum rabbabara.

-----------------------------------------

Sjóða allt gumsið saman í 10 mínútur

og hræra vel í á meðan.

-----------------------------------------

Síðan að vera tilbúinn með ca.10 krukkur sem að búið væri að dauðhreinsa í sjóðandi heitu vatni.

--------------------------------------------------------Síðan þegar að búið er að fylla á allar krukkurnar,  er ráðlagt að snúa öllum krukkunum  á hvolf í 1 sólarhring í ísskáp; slíkt myndi virka með sama hætti og þegar að vörur eru vacon-pakkaðar og sultan geymist betur

til langs tíma.

 

 

 


Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband